Þriðjudaginn 1. nóvember kl. 12:15 - 13:00 fer fram opinn fyrirlestur í beinu streymi um umverfisvænni framkvæmdir fyrir heilsusamlegra heimili.
Hlekkur á streymi: ust.is/umhverfisvaenni-framkvaemdir-1-nov
Farið verður yfir atriði eins og umhverfisvottuð byggingarefni, innréttingar, umhverfismerki og fleira. Að auki verður skoðað hvernig megi skapa góða innivist með rakavörnum, efnisvali og svo framvegis.
Við hvetjum áhugasama til að senda okkur spurningar og vangaveltur fyrir fram svo að við getum mótað fyrirlesturinn eftir ykkar áhuga. Senda inn nafnlausa spurningu.
Fyrirlesturinn flytur Bergþóra Kvaran, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun.
Ekki missa af áhugaverðum fyrirlestri um umhverfismál á mannamáli!
Tengt efni: