Framlenging á starfsleyfi – Kristín Ósk Matthíasdóttir / Fiskabúrið
Umhverfisstofnun auglýsir framlengingu á starfsleyfi Kristínar Ósk Matthíasdóttur / Fiskabúrið í Vatnsfirði sem gildir fyrir fiskeldi með allt að 200 tonna ársframleiðslu. Umhverfisstofnun er heimilt að framlengja starfsleyfi rekstaraðila í samræmi við 4. mgr. 6. gr. laga 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir. Framlengingin á starfsleyfi er heimil til eins árs en hún mun gilda til 11. desember 2022.
Athugasemdir við að leyfið sé framlengt skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun (ust@ust.is) merkt UST202204-021. Frestur til að skila inn athugasemdum er til og með 14.september.
Hér er hægt að skoða starfsleyfið sem framlengja á.