Norræna vatnaráðstefnan (Nordic WFD Conference) verður haldin á Hilton Reykjavik Nordica í Reykjavík dagana 30. ágúst til 1. september 2022.
Beint streymi: https://nordicwfd2022.vatn.is/live-stream/
Vatnaráðstefnan er samstarfsvettvangur fyrir norræna aðila sem sinna innleiðingu vatnatilskipunar (Water Framework Directive).
Markmið ráðstefnunnar er að deila reynslu og ræða um þær áskoranir sem felast í vatnaáætlun ríkjanna og verndun vatns, en Ísland staðfesti nýverið sína fyrstu vatnaáætlun.
Fyrsti dagur ráðstefnunnar, 30. ágúst, er opinn öllum. Það er orðið fullt í sæti í sal en öll velkomin að fylgjast með í streymi.
Dagskráin samanstendur af opnum fyrirlestrum og umræðum og fer fram á ensku.
Dagskrá: https://nordicwfd2022.vatn.is/programme/
Seinni tveir dagar ráðstefnunnar eru fyrir sérfræðinga í stjórnsýslu vatnamála.
Öll áhugasöm um málefni vatns eru hvött til þess að taka þátt.
Mynd: Markmið Norrænu vatnaráðstefnunnar er meðal annars að ræða verndun vatns / Unsplash.