Stök frétt

 Umhverfisstofnun hefur lagt fram til kynningar tillögu að friðlýsingu verndarsvæðis norðan Dyrfjalla og náttúruvættisins Stórurðar. Tillagan er unnin af samstarfshópi sem í eiga sæti fulltrúar Umhverfisstofnunar, sveitarfélags, landeigenda jarðanna Hrafnabjarga, Unaós-Heyskála og Sandbrekku og umhverfis- og auðlindaráðuneytis.

Frestur til að skila athugasemdum við tillöguna er til og með 15. janúar 2021. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má finna hér. 

Myndina tók Hafþór Snjólfur Helgason.