Stök frétt

Umhverfisstofnun, Reykjavíkurborg og Ríkiseignir hafa undanfarið unnið að undirbúningi friðlýsingu Lundeyjar í Kollafirði og er tillaga að friðlýsingarskilmálum hér með auglýst til kynningar á heimasíðu Umhverfisstofnunar.

Frestur til að skila athugasemdum við tillögunni er til og með 20. nóvember 2020. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má finna hér