Stök frétt

Umhverfisstofnun, ásamt landeigendum og sveitarfélaginu Skorradalshreppi, kynnir hér með áform um friðlýsingu votlendissvæðis Fitjaár í Skorradal.

Áform um friðlýsingu eru kynnt í samræmi við málsmeðferð 2. og 3. mgr. 36. gr. náttúruverndarlaga, sbr. 2. mgr. 38. gr. laganna en gert er ráð fyrir að svæði sem ekki er á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár skuli kynnt sérstaklega.

Frestur til að skila athugasemdum er til og með 3. janúar 2020. Athugasemdum við áformin má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. 

Frekari upplýsingar er að finna hér.