Stök frétt

Í síðustu viku fóru starfsmenn Umhverfisstofnunar í fjöruna í Bakkavík á Seltjarnarnesi að tína rusl,  vegna vöktunarverkefnis stofnunarinnar. Vöktunin felur í sér að tína allt rusl á 100 m kafla, fjórum sinnum á ári. Ruslið er flokkað eftir staðlaðri aðferðafræði og eru gögnin notuð til að fylgjast með þróun á magni og samsetningu rusls á ströndum.

Það varð fljótt áberandi hversu mikið var af blautklútum, sem var staðfest eftir talningu á ruslinu. Alls voru tíndir 977 blautklútar, en það hafa aldrei fundist eins margir blautklútar í einni ferð. Til samanburðar, þá voru alls tíndir 753 blautklútar árið 2017 og 605 árið 2018.

Að gefnu tilefni viljum við ítreka að klósettið er EKKI ruslafata.