Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur nú lagt fram til kynningar tillögu að friðlýsingu vatnasviðs Markarfljóts: 22 Markarfljótsvirkjun A og 23 Markarfljótsvirkjun B á grundvelli flokkunar svæðisins í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar, sbr. ályktun Alþingis nr. 13/141, frá 14. janúar 2013.

Lögð er fram tillaga að auglýsingu um friðlýsingu svæðisins og kort þar sem tillaga að mörkum svæðisins er dregin upp.

Tillagan byggir á 53. gr. náttúruverndarlaga nr. 60/2013. 

Forsendur afmörkunar

Faghópur 1 í 2. áfanga rammaáætlunar skilgreindi áhrifasvæði virkjunar svo: „Svæði sem til greina koma vegna vatnsaflsvirkjana voru afmörkuð þannig að miðað var við vatnasvið ofan fyrirhugaðra stíflumannvirkja en þar fyrir neðan var aðeins tekinn meginfarvegurinn og næsta nágrenni hans (100-500 m út frá miðlínu eftir aðstæðum…).“ Lagt er til að verndarsvæði vegna Markarfljótsvirkjunar B sé vatnasvið Markarfljóts ofan stíflumannvirkja fyrrum fyrirhugaðrar Markarfljótsvirkjunar B og meginfarvegur Markarfljóts þar fyrir neðan til sjávar, 500 m út frá miðlínu til beggja handa nema þar sem farvegurinn er víðari en 1.000 m, þar sé miðað við belti sem nær 100 m út fyrir heildarbreidd farvegarins til beggja handa. Fyrirhuguð Markarfljótsvirkjun A er innan vatnasviðs Markarfljótsvirkjunar B. Mörk svæðisins fylgi jökuljaðri.

Frestur til að skila athugasemdum

Frestur til að skila athugasemdum er til og með 23. janúar 2019. Að kynningartíma loknum tekur Umhverfisstofnun saman umsögn um framkomnar athugasemdir við tillöguna og vísar tillögu að friðlýsingarskilmálum til ráðherra. Athugasemdum má skila á heimasíðu Umhverfisstofnunar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða senda með pósti til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.

Frekari upplýsingar veita Ingibjörg Marta Bjarnadóttir (ingibjorg.bjarnadottir@umhverfisstofnun.is) og Hildur Vésteinsdóttir (hildurv@umhverfisstofnun.is) með tölvupósti eða í síma 591-2000.