Umhverfisstofnun, Katla Geopark og Rangárþing eystra standa að kynningarfundi næsta mánudag um stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið Skógafoss. Fundurinn er öllum opinn og fer fram 19. febrúar kl. 15:00-17:30 í Skógasafni.
Dagskráin er eftirfarandi:
15:00 Fundur settur
15:00-15:15 Hvað er stjórnunar- og verndaráætlun?
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Umhverfisstofnun
15:15-15:25 Deiliskipulag Ytri- Skóga. Anton Kári Halldórsson, skipulags- og byggingarfulltrúi Rangárþing eystra
15:25-15:40 Hvernig nýtist stjórnunar- og verndaráætlun fyrir náttúruvættið? Hákon Ásgeirsson, Umhverfisstofnun
15:50-17:00 Hópavinna og umræður
Umræðum verður skipt upp í fjögur þemu:
17.00-17.30 Samantekt og umræður.
Fundarslit