Stök frétt

Undanfarið hafa fulltrúar Umhverfisstofnuar, Húnavatnshrepps og landeiganda Kornsár 2 í Vatnsdal unnið að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir náttúruvættið Kattarauga. Tillagan er hér með lögð fram til kynningar.

Kattarauga var friðlýst sem náttúruvætti árið 1975 og var markmiðið með friðlýsingunni að vernda tjörnina Kattarauga, hólmana sem í henni eru og tjarnarbakkana

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Kattarauga er ætlað að vera stefnumótandi skjal og unnið í samvinnu við sveitarfélag og landeiganda Kornsár 2, er hún hugsuð sem stjórntæki til að móta framtíðarsýn svæðisins. Markmiðið með gerð hennar er að leggja fram stefnu um verndun Kattarauga og hvernig viðhalda skuli verndargildi svæðisins þannig að sem mest sátt ríki um. Með áætluninni er stefnt að því að standa vörð um og efla jákvæða ímynd svæðisins. Í áætlunni er lögð fram stefnumótum til 10 ára, ásamt aðgerðaáætlun til 5 ára.

Hér að neðan má sjá stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Kattarauga auk auglýsingar um friðlýsingu svæðisins sem gerð var árið 1975.

Frestur til að skila inn athugasemdum og ábendingum er til 23. mars nk. Hægt er að skila inn athugasemdum á heimasíðu stofnunarinnar, með tölvupósti á netfangið ust@ust.is eða með því að senda póst til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Marta Bjarnadóttir, ingibjorgbj@umhverfisstofnun.is, eða í síma 591-2000

 

Tengt efni: