Stök frétt

Hvernig fórstu í vinnuna eða skólann í dag? Með bíl, hjóli eða almenningssamgöngum? Á hverjum degi tökum við ákvarðanir sem geta haft áhrif á umhverfið. Sumar af daglegum ákvörðunum okkar eru meðvituð viðleitni til að lifa í hreinna og heilbrigðara umhverfi.

Myndbandasamkeppnin „GRÆNA LÍFIÐ MITT“, sem Umhverfisstofnun Evrópu (EEA) og félaganet hennar skipuleggja, býður öllum Evrópubúum að sýna sköpunargleði sína og deila því sem þau gera til að hjálpa umhverfinu. Peningaverðlaun verða veitt fyrir bestu myndböndin.

Það sem við borðum og kaupum, hvernig við hreyfum okkur og hitum upp heimili okkar, auk margra annarra stórra og smáa ákvarðana, hefur áhrif á umhverfi okkar og heilsu. Í „GRÆNA LÍFIÐ MITT“ myndbandasamkeppninni, geta Evrópubúar deilt grænum athöfnum sínum með stuttum myndböndum, kosið um bestu myndbrotin og verið öðrum hvatning og fyrirmynd.

Þótt þú getir tekið grænar ákvarðanir á næstum öllum sviðum lífs þíns, leggur „GRÆNA LÍFIÐ MITT“ áherslu á fjögur efni:

  1. Sjálfbær matur

    Næringarríkur matur er nauðsynlegur fyrir heilbrigt líf. En matarframleiðsla krefst dýrmætra auðlinda, eins og lands og vatns. Í hvert skipti sem við sóum mat, sóum við líka þessum auðlindum. Ennfremur geta meindýraeitur og áburður haft áhrif á jarðveg og grunnvatn. Hvað gerir þú til að draga úr umhverfisáhrifum matsins á disknum þínum?

  2. Hreint loft

    Mikið af efnahagslegri starfsemi, allt frá samgöngum til landbúnaðar, losar loftmengunarvalda. Engu að síður, geta daglegar venjur okkar bætt loftgæði, heilsu okkar og lífsgæði. Hvaða ákvarðanir tekur þú til að stuðla að hreinna lofti?

  3. Hreint vatn

    Vötn okkar, ár og höf eru undir miklu álagi, þ.m.t. frá loftslagsbreytingum og mengun. Á mörgum svæðum í Evrópu notum við grunnvatnsbirgðir hraðar en sem nemur endurnýjun þeirra. Þetta hefur áhrif á náttúruna og heilsu okkar. Hvernig getum við hjálpað til við að halda vatnaauðlindum okkar hreinum og lausum við mengun?

  4. Lágmörkun úrgangs

    Það sem við kaupum hefur oft takmarkaðan endingartíma en það er hægt að koma í veg fyrir urðun notaðra hluta. Kannski getur þú sýnt gott fordæmi með því að endurnýta, gera við eða endurvinna eitthvað?

Skoðaðu reglur keppninnar og hvernig þú getur tekið þátt á „GRÆNA LÍFIÐ MITT“ síðunni.

Tímaáætlun

Opnað fyrir umsóknir

1. desember 2017

Lokað fyrir umsóknir

31. mars 2018

Almenn kosning hefst

1. maí 2018

Almennri kosningu lýkur

31. maí 2018

Vinningshafar tilkynntir

5. júní 2018

Verðlaun

Vinningshafar í hverjum flokki (Sjálfbær matur, Hreint loft, Hreint vatn og Lágmörkun úrgangs) fá peningaverðlaun, 1.000 evrur. Verðlaun fyrir vinsælasta myndbandið, sem valið er með netkosningu er 500 evrur.

Sjá nánar á heimasíðu Umhverfisstofnunar Evrópu: https://www.eea.europa.eu/highlights/video-competition-share-your-green-actions

(Mynd Wikimedia)