Stök frétt

Niðurstöður mælinga á rokgjörnum lífrænum efnasamböndum (VOC efnum) vegna kísilverksmiðju Sameinaðs Sílikons hf. hafa borist Umhverfisstofnun. Um er að ræða mælingar sem gerðar voru vegna mikilla lyktaráhrifa sem gætt hefur frá verksmiðjunni frá því hún var gangsett í nóvember 2016. 

Skýrslan lýsir mælingum sem gerðar voru inn í og við verksmiðjuna sjálfa en einnig inn í íbúðarhverfi í Reykjanesbæ. Norska loftrannsóknastofnunin NILU var fengin til að skipuleggja mælingar og greina sýni í kjölfar þeirra. Í heildina mældust um 200 efnasambönd í útblæstri verksmiðjunnar en ekkert eitt þeirra er hægt er að benda á með óyggjandi hætti sem efnið sem veldur þeirri lykt sem hefur komið frá verksmiðjunni. NILU leggur hins vegar til frekari mælingar á tveimur efnum, formaldehýði og anhýdríðum.

Mælingunum má skipta niður í þrjá hluta.

Fyrsti hluti innihélt sýni tekið í íbúabyggð Reykjanesbæjar. Safnað var á sýnið frá 17. júní til 27. júní og gefur niðurstaðan meðalinnihald efnanna fyrir allt tímabilið. Því getur styrkur efnis verið hár í stuttan tíma en lægri á öðrum tímum en mælingin sýnir einungis meðaltal fyrir allt tímabilið. Í skýrslunni kemur fram að engin efnasambönd séu í óvenjulega háum styrk fyrir íbúabyggð. Umhverfisstofnun bendir á að á þessum dögum sem sýninu var safnað bárust fremur fáar ábendingar hvern dag sem bendir til þess að þá daga hafi ekki gætt verulegra lyktaráhrifa.

Annar hlutinn innihélt skammtímasýni þar sem eitt sýni var tekið á hverjum degi í 12 daga frá endurgangsetningu verksmiðjunnar þann 21. maí. Sýnin voru tekin efst í síuhúsi þar sem áætlað er að mesti styrkur sé í útblæstri verksmiðjunnar. NILU dregur þá almennu ályktun á grunni þessara 12 sýna (með þeirri aðferð sem notuð var) að engin skaðleg efni hafi fundist í sýnunum í þeim styrk að þau gætu haft skaðleg áhrif á íbúa nærliggjandi svæða. Ákveðnar vísbendingar voru hinsvegar um að annað efni sem ekki var mælt, formaldehýð, gæti verið til staðar í útblæstri frá verksmiðjunni. Formaldehýð er mjög rokgjarnt lífrænt efnasamband (VVOC) sem þessi tegund mælitækja sem NILU notaði geta ekki mælt. Þann 15. ágúst stóð Umhverfisstofnun því fyrir mælingu á formaldehýði í íbúabyggð og í útblæstri verksmiðjunnar. Mældist efnið þá við greiningarmörk í útblæstri en fannst ekki í íbúabyggð. NILU leggur til að  frekari mælingar á formaldehýði fari fram.  

Þriðji hluti innihélt sýni sem tekin voru í ofnhúsi, inni í síuhúsi og utan á rjáfri síuhúss. NILU dregur sömu ályktun á grundvelli þessara sýna að engin skaðleg efni hafi fundist í sýnunum í þeim styrk að þau gætu haft skaðleg áhrif á íbúa nærliggjandi svæða. Talsvert fannst þó af lífrænu anhýdríði í síuhúsi sem getur valdið lykt og tímabundinni ertingu í öndunarvegi og augum. Anhýdríð eru erfið í mælingu og því er ekki komin fullvissa um styrk þeirra. NILU leggur jafnframt til að gerðar verði frekari mælingar á þessu efni.

Ákvörðun Umhverfisstofnunar um stöðvun reksturs Sameinaðs Sílikons hf. er óbreytt og er rekstraraðila óheimilt að endurræsa ofn verksmiðjunnar nema með skriflegri heimild frá stofnuninni að loknum fullnægjandi endurbótum og ítarlegu mati á þeim.

 Þú getur skoðað skýrsluna hér: Rapport-04.10.2017.pdf

Fyrri frétt: Fyrstu nidurstöður efnamælinga í Helguvík