Stök frétt

Umhverfisstofnun minnir á að nú styttist í að þeir sem fengið hafa úthlutað hreindýraveiðileyfi þurfi að ganga frá greiðslu fyrir leyfið. Borga þarf fyrir kl. 21.00 þriðjudaginn 18. apríl.

Þeir sem ekki borga innan þessa frests hafna úthlutuðu leyfi. Tæplega 400 manns höfðu greitt fyrir leyfi að morgni dagsins í dag, 10. apríl. 

Krafa frá Ríkissjóðsinnheimtu á að vera í heimabanka þeirra sem hafa fengið úthlutun.

Ef menn finna ekki kröfuna eða greiðsluseðilinn er hægt að millifæra eftir neðangreindum upplýsingum. Best er þó að viðkomandi borgi útsenda kröfu.

 Reikningsnúmer:  0001-26-25335  

Kennitala móttakanda:  5402696459

Upphæð greiðslu:   80.000 fyrir kú, 140.000 fyrir tarf.

Skýring greiðslu:  Kennitala þess sem er með úthlutað leyfi.

Mikilvægt er að greiða ekki á seinustu stundu og gott að fylgjast með að greiðslur sem hafa verið settar í sjálfvirkar greiðslur á eindaga greiðist.