Stök frétt

fiskeldi

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Fjarðalax ehf. til framleiðslu á allt að 10.700 tonnum á ári af laxi í Patreskfirði og Tálknafirði. Fjarðalax ehf er með leyfi til eldis á laxi í sjókvíum að 3.000 tonnum á ári í Patreksfirði og Tálknafirði.

Tillagan ásamt umsókn rekstraraðila verður aðgengileg á skrifstofu sveitarstjórnar Vesturbyggðar, Aðalstræti 63, Patreksfirði, á tímabilinu 10.mars – 8.maí 2017.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 8.maí 2017. Á vef Umhverfisstofnunar má finna auglýsta tillögu Umhverfisstofnunar, umsóknargögnin, tilkynningu til Skipulagsstofnunar og matsskylduákvörðun hennar.

„Umhverfisstofnun hefur ekki áform um að halda almennan kynningarfund um tillöguna á auglýsingatíma, en mun endurskoða þá ákvörðun ef eftir því verður óskað.“

Tengd skjöl