Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir móttöku- og flokkunarstöð og urðunarstað fyrir Sorpstöð Rangárvallasýslu. Urðunarstaðurinn og móttökuhúsið eru staðsett að Strönd í Rangárþingi Ytra.

Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti allt að 6350 tonnum af úrgangi á ári, þar af eru 5200 tonn til meðhöndlunar á Strönd. Gildistími starfsleyfis verður 16 ár frá útgáfudegi. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar á skrifstofu Rangárþings Ytra, Suðurlandsvegi 1-3, Hellu, til 12. febrúar 2016.  Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast hér fyrir neðan.

Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. Ekki er fyrirhugað að halda kynningarfund um tillöguna en Umhverfisstofnun mun skoða það nánar ef áskoranir berast þar um.

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 12. febrúar 2016.

Fylgiskjöl