Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur nýverið gert úttekt á tollafgreiðslu plöntuverndarvara á árinu 2014 með hliðsjón af gögnum frá Tollstjóra. Alls voru tollafgreidd 16,7 tonn af þessu vörum á árinu og þar af var óskað eftir heimild Umhverfisstofnunar til tollafgreiðslu á 15,9 tonnum (95%) en 0,8 tonn (5%) voru tollafgreidd án þess að slík heimild væri fyrir hendi. Til samanburðar voru 15,2 tonn af plöntuverndarvörum tollafgreidd árið 2013 og þar af var ekki veitt heimild til tollafgreiðslu fyrir 4,4 tonnum (29%).

Þar sem úttektin sýnir, andstætt því sem var á fyrra ári, að mikill meirihluti plöntuverndarvara sem fer á markað hér á landi kemur nú fram við tollafgreiðslu endurspegla upplýsingarnar vel  raunverulegt ástand hvað þetta varðar.

Í samræmi við hlutverk Umhverfisstofnunar í efnalögum er mikilvægt að stofnunin hafi ætíð bestu tiltækar upplýsingar um markaðssetningu á plöntuverndarvörum til þess að styðjast við í stefnumótun til framtíðar í þessum málaflokki sem og við skyldubundin gagnaskil til innlendra og erlendra aðila.

 

Tengd Skjöl

  • Hér má nálgast skýrslu um úttektina: Skýrsla