Stök frétt

Rúmlega 400 manns höfðu greitt úthlutað leyfi að morgni mánudagsins 13. apríl. Nú styttist í að þeir sem fengið hafa úthlutað þurfi að ganga frá greiðslu fyrir leyfið. Borga þarf fyrir leyfið í heild sinni þannig að ekki er um að ræða staðfestingargjald. Borga þarf fyrir kl. 21.00 miðvikudaginn 15. apríl. Þeir sem ekki borga innan þess frests hafna þar með úthlutuðu leyfi. Krafa frá Ríkissjóðsinnheimtu á að vera í heimabanka þeirra sem hafa fengið úthlutun. Ef menn finna ekki kröfuna eða greiðsluseðilinn er hægt að millifæra eftir neðangreindum upplýsingum. Best er samt að viðkomandi borgi útsenda kröfu.

 

Reikningsnúmer:  0001-26-25335  

Kennitala móttakanda:  5402696459

Upphæð greiðslu:   80.000 fyrir kýr, 135.000 fyrir tarf.

Skýring greiðslu:  Kennitala þess sem er með úthlutað leyfi.

 

Mikilvægt er að greiða ekki á seinustu stundu og fylgjast með því að greiðslur sem hafa verið settar í sjálfvirkar greiðslur á eindaga greiðist.