Stök frétt

Höfundur myndar: Kristinn Már Ársælsson

Þann 14. febrúar sl. gaf Umhverfisstofnun út starfsleyfi fyrir urðunarstað Byggðasamlagsins Hulu á Skógasandi, Rangárþingi eystra. Tillaga að starfsleyfinu var auglýst á tímabilinu 11. desember 2013 - 5. febrúar 2014 en Umhverfisstofnun bárust engar athugasemdir við tillöguna. Samkvæmt hinu nýja starfsleyfi er Byggðasamlaginu Hulu heimilt að taka á móti og urða allt að 400 tonn af úrgangi á ári. Starfsleyfið veitir því heimild til sambærilegs rekstrar og verið hefur til þessa. Þó er nýjung í starfsleyfinu að veitt er heimild til rekstrar söfnunarstöðvar (gámastöðvar) á urðunarstaðnum. Starfsleyfið gildir til næstu 16 ára. Eftirlit með starfseminni er í höndum Umhverfisstofnunar.