Stök frétt

Í ár eru liðin fimm ár frá því Surtsey var samþykkt á Heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) sem einstakur staður náttúruminja. Til að minnast þess að Surtsey er á heimsminjaskránni hefur Umhverfisstofnun látið útbúa skjöld um skráninguna.

Skjöldurinn verður afhjúpaður næstkomandi miðvikudag 5. júní 2013 en þá eru liðin 46 ár frá því Surtseyjareldum lauk. Jafnframt eru í ár liðin 50 ár frá því gos hófst.

Skjöldurinn er staðsettur á Breiðabakka á Heimaey. Umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, mun afhjúpa skjöldinn kl 14:00 og á eftir verður móttaka í gestastofu friðlandsins, Surtseyjarstofu, þar sem er að finna sýningu um eyjuna og þær rannsóknir sem þar fara fram.

Surtsey var samþykkt á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna þann 8. júlí 2008 á grundvelli mikilvægi rannsókna og vöktunar á landnámi dýra og plantna ásamt þróun eyjarinnar og framvindu lífríkis Surtseyjar. Sú framsýni íslenskra stjórnvalda að friðlýsa Surtsey, ásamt þeim rannsóknum og vöktunum á lífríki og jarðfræði eyjarinnar sem þar hafa farið fram frá upphafi, á stóran þátt í því að Surtsey er á heimsminjaskrá UNESCO.