Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir starfsemi Efnaeimingar ehf. að Seljavogi 14, Reykjanesbæ.  Samkvæmt tillögunni verður heimilt að endurvinna með eimingu allt að 80 tonn á ári af tilteknum spilliefnum í vökvafasa.  Spilliefnin sem um ræðir eru terpentína, sellulósaþynnir, etanól og önnur sambærileg spilliefni.  Einnig verður Efnaeimingu heimilt að flytja spilliefni að og frá starfstöð sinni.  Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu sextán ára. 

Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, Reykjanesbæ, til 27. desember 2012.  Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar.  Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. 

Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. desember 2012.

Haldinn verður opinn kynningarfundur miðvikudaginn 28. nóvember nk. kl. 17 í safnaðarheimilinu Höfnum.

Tengd gögn