Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur. Information in English

Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur afturkallað áminningu sem var veitt Nesskel vegna tveggja frávika frá starfsleyfi fyrirtækisins. Áminningin var veitt þann 2. apríl sl. á þeim forsendum að fyrirtækið hefði ekki sent stofnuninni staðfestingu um úrbætur eða áætlun um úrbætur vegna frávikanna. Nú hefur komið í ljós að umrædd gögn voru send Umhverfisstofnun 22. mars sl. en voru ekki höfð til hliðsjónar við vinnslu málsins vegna mistaka við skráningu. Umhverfisstofnun hefur beðið Nesskel velvirðingar á þessum mistökum.