Stök frétt

25. maí

Í dag hafa loftgæði á höfuðborgarsvæðinu verið mjög góð og vel undir heilsuverndarmörkum (50 µg/m3 að meðatali á sólarhring). Hæsta gildi sem hefur mælst á Grensásvegi frá miðnætti er um 42 µg/m3. Á Selfossi hafa svifryksmælingar farið lítið eitt hækkandi frá um klukkan 10 í morgun og um klukkan 13:00 var klukkustundargildið 85 µg/m3. Við þær aðstæður geta viðkvæmir einstaklingar fundið fyrir einhverjum einkennum. Á Raufarfelli eru gildin aðeins hærri og hafa verið eitthvað yfir 100 µg/m3 síðan í nótt. Hæsta gildi frá miðnætti er 132 µg/m3 og nú um klukkan 13:00 var svifrykið 123 µg/m3.

Vert er að minna á að ef svifryksgildi fara yfir 100 µg/m3 þá geta einstaklingar með undirliggjandi öndunarfæra- og/eða hjartasjúkdóma fundið fyrir auknum einkennum og ekki er mælt með mikilli veru utandyra.

24. maí

Þriðjudaginn 24. maí voru loftgæði góð á höfuðborgarsvæðinu og sólarhringsmeðaltal svifryksmengunar var undir heilsuverndarmörkum (50 µg/m3).  Það sama má segja um svifryk á Selfossi þó að toppur hafi mælst upp að 208 µg/m3 um morguninn en hann varði stutt og voru svifryksgildi komin undir 50 µg/m3 uppúr klukkan 9.

Á Raufarfelli sýndu svifryksmælingar hærri gildi og voru yfir 50 µg/m3 mörkunum allan daginn en hæsta gildi sem mældist var 187 µg/m3. Meðaltalsgildi yfir sólarhringinn var 112 µg/m3.

Umhverfisstofnun minnir á að hægt er að nálgast mælingar á Suðurlandi á kort.vista.is en þar inni má einnig finna mælingar frá Kópavogi og Hvaleyrarholti. Einnig er hægt að sjá loftgæðamælingar frá Grensásvegi og Fjölskyldu og húsdýragarðinum á loftgæði.is. Á forsíðu Umhverfisstofnunar má finna upplýsingar um loftgæði, bækling og leiðbeiningar um öskufok/öskufall ásamt flýtileið í svifryksmælingar.