Stök frétt

Umhverfisstofnun greindi frá því undir lok nóvember í fyrra að ekki væri leyfilegt að nota vélknúin farartæki til veiða hérlendis. Þá hafði ríkssaksóknari úrskurðað að leyfilegt væri að nota götuskráð fjórhjól til að komast til og frá veiðilendum á vegum eða merktum vegaslóðum. Nú hefur fallið dómur yfir tveimur mönnum sem héldu til veiða á sexhjóli.

Brot mannanna felst í því að halda til veiða á sexhjóli og breytir þar engu þótt þeir hafi gengið einhverja vegalengd áður en dýrið var fellt. Rétt er að ítreka að einungis er leyfilegt að flytja menn til veiða eftir merktum vegum eða slóðum. Þó hafa leiðsögumenn með hreindýraveiðum heimild til þess að sækja fellda bráð á léttum vélknúnum ökutækjum að lágmarki með sex hjólum.

Annar mannanna var einnig ákærður fyrir að hafa ekið utan vegar og valdið þar með hættu á náttúruspjöllum.

Dómur Héraðsdóms Austurlands