Stök frétt

Heimilt er að veiða allt að 1333 hreindýr á tímabilinu 1. ágúst til 15. september 2009 auk hreindýrakálfa sem fylgt hafa felldum kúm, en þá skal fella sé þess kostur. Þessi heimild er veitt með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun fjölda veiðiheimilda. Umhverfisstofnun getur heimilað tarfaveiði frá 15. júlí 2009, en þó með þeim fyrirvara að fram til 1. ágúst séu tarfar ekki veiddir ef þeir eru í fylgd með kúm eða ef veiðar trufla kýr og kálfa í sumarhögum.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa.

Umhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimilda.

Veiðiheimildir árið 2009 skiptast sem hér segir eftir veiðisvæðum og kyni dýra:

                                       Kýr          Tarfar      Alls

Svæði 1                          11                  66          77

Svæði 2                        536                134        670

Svæði 3                          40                  20          60

Svæði 4                          27                  13          40

Svæði 5                          83                  40        123

Svæði 6                          10                  25          35

Svæði 7                        100                  60        160

Svæði 8                          91                  35        126

Svæði 9                          27                  15          42

Samtals                        925                408       1333

 

Veiðisvæðin skiptast þannig eftir sveitarfélögum:

Svæði 1 Vopnafjarðarhreppur og Norður Hérað, þ.e. áður Jökuldalur norðan Jökulsár á Brú og Jökulsárhlíð

Svæði 2 Norður Hérað, áður Jökuldalur austan Jökulsár á Brú og Hróarstunga. Einnig Fellahreppur, Fljótsdalshreppur og Austur Hérað (þ.e. Vellir vestan Grímsár og Skriðdalur vestan Grímsár)

Svæði 3 Austur Hérað, áður Hjaltastaðaþinghá, Eiðaþinghá og Borgarfjarðarhreppur

Svæði 4 Austur Hérað, áður Vellir austan Grímsár og Seyðisfjörður og Mjóifjörður

Svæði 5 Fjarðabyggð, áður Eskifjörður/Norðfjörður og Reyðarfjörður í Fjarðabyggð

Svæði 6 Austur Hérað, áður Skriðdalur austan Grímsár og Breiðdalshreppur

Svæði 7 Djúpavogshreppur, áður Beruneshreppur, Búlandshreppur og Geithellnahreppur

Svæði 8 Hornafjörður, áður Bæjarhreppur og Nesjahreppur

Svæði 9 Hornafjörður, áður Mýrahreppur og Borgarhafnarhreppur (Suðursveit)

 

Þrátt fyrir skiptingu veiðiheimilda eftir veiðisvæðum getur Umhverfisstofnun, í samráði við Náttúrustofu Austurlands, fært veiðiheimildir milli samliggjandi veiðisvæða þyki sýnt að hjarðir hafi fært sig milli þessara veiðisvæða eða aðrar sérstakar ástæður gefa tilefni til.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. reglugerðar um stjórn hreindýraveiða, nr. 486/2003 er Umhverfisstofnun heimilt að gera ráðstafanir til þess að veiði dreifist sem jafnast á veiðitímann á hverju svæði.

Veiðiheimildir þessar eru auglýstar í samræmi við 6. gr. reglugerðar nr. 486/2003 um stjórn hreindýraveiða, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, sbr. 14. gr. laga nr. 64/1994 um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum með áorðnum breytingum.

 

 

Umhverfisráðuneytinu, 9. janúar 2009