Stök frétt

Veiðitímabil á grágæs og heiðargæs hefst miðvikudaginn 20. ágúst. Eftir sem áður verður blesgæs alfriðuð og í Skaftafellssýslum má ekki byrja að veiða helsingja fyrr en 25. september. Annarsstaðar á landinu er leyfilegt að veiða helsingja frá 1. september. Tilgangur friðunar á helsingja í Skaftafellssýslum er að vernda þann varpstofn sem hefur verið að ná fótfestu á undanförnum árum. Helsingi verpir ekki á Íslandi nema í Skaftafellssýslum svo vitað sé og þykir því sérstök ástæða til þess að veiðimenn sýni aðgát á þessu svæði.

Blesgæs og helsingi hafa almennt skamma viðveru hér á landi á för sinni til og frá varpstöðvum á Grænlandi á vorin og haustin. Blesgæs er alfriðuð og eru veiðimenn hvattir til þess að kynna sér hljóð og útlitseinkenni hennar til þess að þeir greini hana frá öðrum gæsum. Veiðimenn sem stunda veiðar á útbreiðslusvæði hennar þurfa að sýna sérstaka aðgát. Blesgæs hefur viðkomu hér á landi frá fyrri hluta september og fram í byrjun nóvember og þá helst á Vesturlandi um Borgarfjarðarhérað og sunnanvert Snæfellsnes, til suðurs um Kjós og Hvalfjörð. Einnig á Suðurlandi á láglendi Árnes- og Rangárvallasýslu, undir Eyjafjöllum og í Mýrdal, Landbroti og á Síðu.

 

Endurnýjun veiðikorta

Veiðimenn eru minntir á að endurnýja veiðikort sín enda er einungis heimilt að stunda skotveiðar á fuglum sé veiðikort meðferðis. Hægt er að endurnýja veiðikortið á vefsíðu Umhverfisstofnunar.

 

Skil á fuglamerkjum

Sérstök ástæða er til að hvetja veiðimenn til að skila inn merkjum ef þeir veiða merkta fugla. Upplýsingarnar sem merkin veita eru mikilvægar fyrir rannsóknir á þessum veiðistofnum.  Merkjunum á að skila til Náttúrufræðistofnunar:

 

Náttúrufræðistofnun  íslands

Fuglamerkingar

Pósthólf 5320

125 Reykjavík

 

Upplýsingar um hvað þarf að fylgja með fuglamerkjum er að finna í Veiðidagbókinni sem fylgir veiðikortinu en einnig má fá upplýsingar í síma 590 0500 hjá Nátturfræðistofnun Íslands

 

Skil á gæsavængjum

Nú í ár eins og undafarin ár munu Arnór Þ. Sigfússon og á austurlandi mun Halldór W. Stefánsson safna og skoða gæsa- og andavængi til að meta hlutfall unga frá sumrinu. Vilji menn senda inn vængi skulu þeir senda inn vængi sömu megin af öllum fuglunum, t.d. hægri væng. Nánari upplýsingar um þetta má sjá á bls. 21 í Veiðidagbókinni 2008 eða í símum 843 4924 (Arnór) og á austurlandi 471 2553 (Halldór).