Stök frétt

Enn eitt illviðrið gekk yfir SV-land í nótt og yfir Wilson Muuga þar sem skipið situr strandað við Hvalsnes. Eins og séð verður er það versta yfirstaðið þar sem saman hefur farið hæsti straumur, áhlaðandi og mikill vindur. Þó er spáð belgingi í nótt.

Í morgun þegar starfsmenn á vegum Umhverfisstofnunar fóru um borð með þyrlu Landhelgisgæslu Íslands var ástand skipsins að mestu leyti óbreytt. Smit (sennilega smurolía úr vélarrúmi) barst frá skipinu. Skipið situr stöðugt á fjörunni, hefur þó færst eilítið nær landi síðustu nótt og situr því hærra. Niðurstaðan er sú hvað skipið varðar að það situr og allar líkur eru á því að það muni sitja stöðugt.

Um miðjan dag á háfjöru virðist hafa náð að vatna undan botngeymum þar sem enn er svartolíu að finna og byrjaði þá að leka svartolíu úr skipinu og lá taumur í átt til lands. Hér er um að ræða svartolíu úr rifnum botntönkum skipsins. Meðal verkefna á skipsstað var að setja einstreymisloka á öndunarop sem liggur frá botngeymunum upp á yfirborð. Þegar því verki var lokið dró umtalsvert úr lekanum og þegar farið var frá borði var ástandið þannig að flekkurinn hafði slitnað frá skipinu.

Fulltrúar frá heilbrigðiseftirliti Suðurnesja og umhverfisnefnd Sandgerðis skoðuðu fjörur við strandstað og í næsta nágrenni og olíubrák sást, um kílómeter á lengd og um 200 m löng. Brákin er ekki samfelld en þó hafði olía safnast í einstökum víkum. Við fjörukönnun sást enginn olíublautur fugl en vegna mikils fuglalífs er talið sennilegt að fugl muni lenda í þessari olíu.

Með flóði og auknu brimi samfara vaxandi vindi nú með kvöldinu eykst hreinsimáttur náttúrunnar og því munu náttúruöflin sjá um að brjóta olíuna niður í nótt.

Áætlað er að fljúga yfir svæðið strax í birtingu til könnunar á olíuflekk og senda mann í skipið þannig að hægt sé að kíkja í lestar og geyma. Gengnar verða fjörur og fylgst verður með skipinu af og til. Í framhaldi af þessu verður staðan endurmetin.

Við þessar athuganir og ákvarðanir hefur verið haft samráð við umhverfisnefnd Sandgerðis.