Stök frétt

Umhverfisstofnun sendir út rafrænar kveðjur til allra viðskiptavina, vina og velunnarra stofnunarinnar.

Þeim peningum sem annars hefðu farið í kostnað vegna hefðbundinna póstsendinga er þess í stað beint til verðugs málefnis og í ár er Mæðrastyrksnefnd styrkt um 50 þúsund krónur og Hjálpræðisherinn um 25 þúsund. Miklvægt starf beggja þessara góðgerðasamtaka hefur vakið verðskuldaða athygli og með þessu vill Umhverfisstofnun leggja sitt af mörkum til að þeir sem á þurfa að halda geti notið góðs af starfi þeirra.

Ljósmynd af jólakorti Helga Kvam