Stök frétt

Þær breytingar hafa verið gerðar á reglugerð um starfsleyfi og reglugerð um eftirlit með starfsleyfisskyldri starfsemi að ekki þarf lengur að sækja um starfsleyfi til viðkomandi heilbrigðiseftirlits fyrir tímabilið 28. desember – 6. janúar (að báðum dögunum meðtöldum) vegna flugeldasýninga og almennt vegna lítilla brenna sem loga skemur en 2 klukkustundir.

Ennþá er í gildi að sækja þarf um starfsleyfi fyrir stórar brennur sem loga lengur en 2 klst., og ef efna á til flugeldasýningar utan ofangreinds tímabils.