Stök frétt

Umhverfisstofnun vill minna á að þótt mikill árangur hafi náðst við að útrýma Campylobacter úr kjúklingum hér á landi verði að gera ráð fyrir að Campylobacter geti verið í kjúklingum og öðrum alifuglum, sérstaklega yfir sumartímann.

Rétt meðhöndlun á hráum kjúklingum er því mjög mikilvæg.

Uppþíðing/kæling

  • Ávallt skal þíða kjúklingu í kæliskáp til að koma í veg fyrir mikla fjölgun sjúkdómsvaldandi örvera.(ef þær eru til staðar í matvælinu)
  • Þegar kjúklingur er þíddur upp eða geymdur í kælikáp er nauðsynlegt að tryggja að safi úr kjúklingnum berist ekki á önnur matvæli í kæliskápnum.

Handþvottur:

· Þvoið hendur áður en farið er að meðhöndla matvæli og á milli vinnslu mismunandi rétta og áður en farið er að borða.

Krossmengun

· Gæta skal þess að safi frá kjúklingi leki ekki á önnur matvæli.

· Þrífa skal öll áhöld sem notuð eru við eldamennsku á kjúkling áður en þau eru notuð fyrir önnur matvæli.

Hitun

· Mjög mikilvægt að gegnhita kjúklinginn við matreiðslu en þá er kjötsafinn í þykkasta bitanum orðinn tær og steikingahitamælir sýnir a.m.k. 75°C.

Sjá hér bækling Umhverfisstofnunar, Góð ráð við grillið