Stök frétt

Matvælastofnunin í Svíþjóð hefur látið efnagreina morgunkorn (18 vörutegundir) í þeim tilgangi að kanna glúteninnihald þess.

Niðurstöður efnagreininganna sýndu að Kellogg’s Cornflakes inniheldur það mikið glúten að þeir sem eru með glútenóþol ættu ekki að neyta þessarar vöru. Frosties reyndist einnig innihalda of mikið af glúteni fyrir þennan hóp.

Glútenóþol (cøliaki, celiac disease) er þarmasjúkdómur sem einungis er hægt að meðhöndla með mataræði. Einstaklingar með þennan sjúkdóm verða ávallt að forðast kornvörur sem innihalda glúten. Glúten er samheiti yfir prótein sem finnast í korntegundum eins og hveiti, rúgi og byggi. Tíðni glútenóþols á Íslandi er áætluð um 0,1% sem gerir um 300 einstaklinga á landinu.

Hingað til hafa kornflögur (unnið úr maís) verið hluti af glútenfríu fæði, þar sem glúteninnihald þess hefur mælst undir þeim mörkum sem skilgreind eru fyrir glútenfrí matvæli. Eftir að niðurstöður nýrra efnagreininga lágu fyrir hefur verið vakin athygli á því að fundist hafa leifar af glúteni í Kellogg’s Cornflakes og Frosties og því ekki óhætt fyrir fólk með glútenóþol að neyta þeirra.

Glútenið í þessum vörum kemur frá maltextrakti sem notað er við framleiðsluna. Maltextrakt er ýmist dökkur, sírópskenndur lögur eða duft, unnið úr korni, oftast nær byggi, sem er bleytt og látið spíra og síðan hitað og malað. Við þetta breytist sterkjan í korninu í sykur. Maltextrakt getur innihaldið leifar af glúteni.

Allar kornflögurnar sem voru rannsakaðar innihéldu maltextrakt, en aðeins í Kellogg’s vörum komu fram leifar af glúteni. Svo virðist að það sé vegna ákveðinnar framleiðsluaðferðar sem notuð er við maltextraktið í þessum vörum.