Stök frétt

Landvarðanámskeið verður í febrúar og mars nk. Kennt verður í fjarkennslu að hluta. Þátttaka veitir landvarðaréttindi, forgang um landvörslustörf á vegum Umhverfisstofnunar og kostar kr. 75000.-.

Umsóknum skal skilað bréflega til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24 eða í tölvupósti á netfangið ust@ust.is fyrir 3. febrúar 2006. Í umsókn komi fram nafn, kennitala, heimilisfang, sími og netfang. Skilyrði er að umsækjendur hafi náð tvítugsaldri.

Aðallega er kennt um helgar og á kvöldin á virkum dögum.

 

Sjá stundatöflu hér fyrir neðan:

 

 

 S  T  U  N  D  A  T  A  F  L  A      N  Á  M  S  K  E  I  Ð  S  I  N  S

 

Dags:

Efni og helstu aðferðir.

Tími

1. lota, í Reykjavík,  9. – 12. febrúar  – 30 klst.

 

9.

Kynning á námskeiði.

1 klst

9.

Helstu störf landvarða. Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

4 klst

10.

Náttúruvernd, saga, hugmyndafræði. Friðlýsingar, flokkar, einstök svæði m. sérstakt gildi. Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

5 klst

11.

Umhverfistúlkun, hugmyndafræði og grundvallaratriði. Fyrirlestrar og verkefni.

3 klst

11. 

Menningarminjar. Gildi, verndun. Áhrifavaldar. Einstakir þættir – greining sérstöðu og nýting við fræðslu. Fyrirlestrar og vettvangsferð eftir hádegi.

7 klst

12.

Náttúrufræði, vistfræði. Grunnþættir, hugtök, gildi, verndun. Áhrifavaldar, þolmörk, aðferðir. Einstakir þættir – greining sérstöðu og nýting við fræðslu. Fyrirlestrar og vettvangsferð.

10 klst

2. lota, í Rvík og fjarkennslu, 16. – 17. febrúar  – 10 klst

 

16.

Mannleg samskipti, almennt um samskipti, sjálfsmynd, hindranir, framkoma, ímynd og fleira.  Að taka á erfiðum málum. Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

5 klst.

17. 

Gestir friðlýstra svæða. Ferðamennska, áhrifaþættir framtíðar, ástæða heimsókna á svæði, sýn gesta, þolmörk og viðhorf. Mismunandi hópar og þarfir gesta. 

5 klst.

3. lota, í Skaftafelli,  1. - 5. mars  –  40 klst.

 

1.

Farið í Skaftafell

4 klst.

2.

Þemaumhverfistúlkun

10 klst

3.

Umhverfistúlkun, æfingar í gönguferðum og gestastofu. Upplýsingagjöf.

10 klst

4.

Sama

10 klst

5.

Lok umhverfistúlkunar í Skaftafelli, farið heim

6 klst

4. lota, í Rvík og fjarkennslu, 16. – 17. mars  - 10 klst.

 

16.

Stjórnsýsla umhverfismála. UST, hlutverk og staða, verkefni og fleira. Þingvallanefnd, hlutverk og staða, verkefni. Sveitarfélög og aðrir sem koma að rekstri og umsjón. Lög og reglugerðir. Samstarfsaðilar erlendis. Alþjóðasamningar. Fyrirlestar og umræður.

5 klst

17.

Öryggismál. Hlutverk landvarða, boðleiðir, eigið öryggi, öryggi gesta, að þekkja svæðið sitt. Öryggisgreining og öryggisáætlun. Gerð öryggisáætlunar. Fyrirlestrar, umræður, hópverkefni.

5 klst

5. lota, í Reykjavík,  23. – 26. mars  – 30 klst.

 

23.

Fræðsla. Gerð náttúru- og sögustíga

5 klst

24.

Fræðsla. Frh. náttúru og sögustígar. Fræðsluskilti

5 klst.

25

Göngustígagerð. Vettvangsferð.

10 klst

26.

Verndaráætlun, stefnumörkun. Hvað og fyrir hverja? Hagsmunaaðilar. Samráð. Stjórntæki. Fyrirlestrar og vettvangsferð.

10 klst