Stök frétt

Þann 13. júní var lokið gerð nýrrar 200 fermetra plankastéttar á efra plani við Gullfoss.

Gangstéttin tekur við ofan tröppunnar sem tengir efri og neðri aðkomu og liggur að útsýnispalli fyrir ofan fossinn. Gangstígurinn var tekinn að bila og illfær að hluta.

Verkið var unnið af Verktakafyrirtæki Þorsteins Þorvaldssonar, Kvistfelli, frá Selfossi.

Pokasjóður styrkti gerð plankastéttarinnar.