Stök frétt

Síðustu tvær vikurnar hefur verið í gangi leikur til kynningar á norræna umhverfismerkinu Svaninum. Leikurinn er samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar, Morgunblaðsins, Tæknivals og Rásar 2.

Þátttaka í leiknum hefur verið einstaklega góð og á hverjum virkum degi hefur verið dreginn út einn heppinn hlustandi á Rás 2 sem hefur hlotið USB minnislykil að launum.

Í morgun dró Davíð Egilson forstjóri Umhverfisstofnunar úr öllum innsendum lausnum í Svansleiknum í beinni útsendingu á Rás 2 og hlaut Guðlaug Árnmarsdóttir stórglæsilega og umhverfisvæna Fujitsu Siemens tölvu frá Tæknivali.