Stök frétt

Umhverfisstofnun hefur staðfest að umsókn Matorku ehf. um starfsleyfi fyrir 6.000 tonn/ári vegna landeldis á laxi, bleikju eða regnbogasilungi í Grindavík, sé fullnægjandi og að í undirbúningi er auglýsing á tillögu að starfsleyfi.
Matorka ehf. er þegar með leyfi fyrir eldi á allt að 3.000 tonnum á ári.
Verið er að vinna að starfsleyfistillögu og gert er ráð fyrir að innan skamms verði hún auglýst í fjórar vikur. Öllum gefst tækifæri til að koma með athugasemdir á auglýsingatíma áður en ákvörðun um útgáfu starfsleyfisins verður tekin.