Vinna við nýjar heimasíður Umhverfis- og orkustofnunar og Náttúruverndarstofnunar er í gangi. Heimasíða Umhverfisstofnunar er virk á meðan vinnunni stendur.

Stök frétt

Umhverfisstofnun auglýsir landvarðanámskeið 2025. Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að starfa sem landvörður. Menntaðir landverðir ganga alla jafna fyrir við ráðningar í störf.

Skráning hefst 2. janúar kl. 10 - skráið ykkur inn með island.is.

Megin umfjöllunarefnin eru:

  • Helstu störf landvarða
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar
  • Náttúruvernd, verkfærin okkar
  • Vinnustaður landvarða
  • Öryggisfræðsla

Námskeiðið hefst 30. janúar og lýkur 2. mars 2025.  

Nánar um landvarðanámskeiðin