Stök frétt

Brennur, stærri en 100 m3, eru skráningarskyldar / Mynd: Canva

Þann 8. desember sl. tók gildi breyting á reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Með breytingunni var brennum, stærri en 100 m3, bætt í listann yfir skráningarskyldan atvinnurekstur. Meðal starfsemi sem er skráningarskyld eru flugeldasýningar. Því fellur fyrri auglýsingarskylda niður.

Skráningin tekur gildi þegar:

  • Skráning hefur farið fram
  • Skráningargjald hefur verið greitt
  • Rekstraraðili hefur fengið senda staðfestingu frá heilbrigðisnefnd

Frekari leiðbeiningar um hvaða reglur gilda um skráningarskyldan atvinnurekstur veita heilbrigðiseftirlitin en þau hafa eftirlit með starfseminni, þ. á m. að starfsemin sé rétt skráð.

Leiðbeiningar og kynningarefni um skráningaskyldan atvinnurekstur

Sækja um flugeldasýningar:  https://island.is/flugeldasyningar

Sækja um brennur stærri en 100 m3: https://island.is/leyfi-fyrir-staerri-brennu

Athugið að einnig þarf að sækja um leyfi fyrir brennum hjá sýslumanni og fyrir flugeldasýningum hjá lögreglustjóra.