Stök frétt

Námskeið fyrir landverði fer fram frá 1. febrúar til 3. mars 2024 / Mynd: Umhverfisstofnun

Umhverfisstofnun auglýsir landvarðanámskeið 2024. Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að starfa sem landvörður. Menntaðir landverðir ganga alla jafna fyrir við ráðningar í störf. Skráning hefst 2. janúar kl. 10.

Megin umfjöllunarefnin eru:

  • Landverðir, helstu störf
  • Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála 
  • Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
  • Gestir friðlýstra svæða
  • Mannleg samskipti
  • Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar 
  • Vinnustaðir landvarða
  • Öryggisfræðsla

Námskeiðið hefst 1. febrúar og lýkur 3. mars. Kennt er um helgar milli klukkan 9 og 14 og á fimmtudags- og föstudagskvöldum frá kl. 17. Námskeiðið er 110 klst.

Gert er ráð fyrir töluverðri heimavinnu til viðbótar við mætingarskyldu á fyrirlestra og umræðufundi.

Fyrirlestrar verða teknir upp en nemendur sem missa af umræðum vinna verkefni í stað umræðnanna.

Námskeiðið er fjarkennt þrjár helgar en ein staðlota verður í náminu og stendur hún frá miðvikudegi og fram á sunnudag. Sú lota er vettvangsferð haldin úti á landi og er skyldumæting í hana. Val verður um tvær helgar í febrúar fyrir staðlotu, þeir sem eru ekki í lotu eru þá í fríi á meðan.

Námskeiðið er kennt á íslensku og þurfa nemendur að vera færir að taka þátt í verkefnum á íslensku, bæði í ræðu og riti.

Námskeiðsgjaldið 2024 er kr. 155.000,- og er allur kostnaður við vettvangsferðina innifalin í því verði.

Nánari upplýsingar

Á heimasíðu Umhverfisstofnunar eða hjá Kristínu Ósk Jónasdóttur, teymisstjóra í teymi náttúruverndarsvæða.

Skráning hefst 2. janúar klukkan 10:00 og stendur til 9. janúar 2024.