Stök frétt

Umhverfisstofnun og Vestmannaeyjabær höfðu skipulagt viðburð til þess að minnast 60 ára afmæli Surtseyjar þriðjudaginn 14. nóvember kl. 17:00 í Eldheimum í Vestmannaeyjum.

Í ljósi þeirrar alvarlega stöðu sem komin er upp þá þykir okkur ekki við hæfi að fagna þessum tímamótum að sinni.
 
Við viljum engu að síður hvetja fólk til að koma í Eldheima næstu daga og skoða ljósmyndasýningu með nýjum og einstökum myndum Golla ljósmyndara, sem hann tók í Surtsey sl. sumar.
 
Umhverfisstofnun, Vestmannaeyjabær/Eldheimar.