Stök frétt

Ester Alda Hrafnhildar Bragadóttir, Þorbjörg Sandra Bakke og Birgitta Steingrímsdóttir, sérfræðingar í teymi hringrásarhagkerfis.

Fulltrúar Umhverfisstofnunar munu deila reynslu sinni af Grænum skrefum með þátttakendum í verkefninu Greening Government Initiative. Verkefnið er alþjóðlegt samstarfsnet þjóða sem leggja áherslu á umhverfisvænan ríkisrekstur. Verkefnið var stofnað af stjórnvöldum í Bandaríkjunum og Kanada árið 2021.

Markmið verkefnisins er að lönd miðli þekkingu og reynslu sín á milli og efli samstarf til að auka árangur í umhverfismálum hins opinbera.  

Þema fundarins er „Þátttaka starfsmanna og menningarbreytingar sem styðja við umhverfisvænan ríkisrekstur“ (e. Employee engagement and culture change to support greening government operations).  

Fulltrúar Chile og Ástralíu munu einnig deila reynslu sinni á fundinum.  

Fundurinn fer fram á Zoom miðvikudaginn 20. september frá kl. 13 - 15 og hvetjum við áhugasama til að skrá sig. Opna skráningarsíðu

Um Græn Skref 

Grænu skrefin eru verkefni sem Umhverfisstofnun hefur haldið úti síðan árið 2014. Í dag taka 177 ríkisstofnanir þátt í verkefninu og efla þannig sitt umhverfisstarf undir handleiðslu sérfræðinga hjá Umhverfisstofnun. Nánar um verkefnið á graenskref.is

177 ríkisstofnanir tóku þátt í verkefninu Grænum skrefum hjá Umhverfisstofnun.