Stök frétt

Vegna smölunar í Friðlandi að Fjallabaki laugardaginn 16. september vill Umhverfisstofnun koma eftirfarandi tilmælum á framfæri til fólks og ferðaþjónustuaðila sem hyggja á ferðalag í friðlandið.

Ferðafólk er beðið um að vera ekki á gönguleiðum um Skallahring að Grænahrygg og í Hattveri um Halldórsgil og í Jökulgili þennan dag. Í Friðlandi að Fjallabaki eru margar aðrar gönguleiðir í boði. Hér má nálgast kort og aðrar upplýsingar um friðlandið.

Nánari upplýsingar veita landverðir í síma 822-4083 eða gegnum netfangið fjallabak.ranger@ust.is