Stök frétt

Nú fer fram vinna við stjórnunar- og verndaráætlun lunda. Umhverfisstofnun ber ábyrgð á verkefninu og vinnur áætlunina í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands og hagsmunaaðila. 

Fyrr á árinu komu hagsmunaaðilar saman í tveggja daga vinnustofu sem leidd var af Dr Fred Johnson, bandarískum sérfræðingi í veiðistjórnun og líkanagerð. Markmið vinnustofunnar var að hefja verkefnið, móta sameiginlega sýn hagsmunaaðila og tilgreina helstu stefnumótandi þætti.  Einnig hóf hópurinn vinnu við að greina mögulegar verndar- og veiðistjórnunaraðgerðir.

Hér má finna samantekt um vinnustofuna og þá vinnu sem farið hefur fram við verkefnið síðustu mánuði.

Samantekt