Stök frétt

Uppbygging innviða í Landmannalaugum er nauðsynleg til þess að koma í veg fyrir að svæðið tapi verndargildi sínu. Bílafjöldi inn á svæðið hefur aukist um 40% frá því í fyrra. 

Grunnþjónusta og endurheimt náttúrufegurðar

Uppbygging sem deiliskipulag Rangárþings ytra lýsir á við um tvö svæði og mismunandi tilgangur með uppbyggingunni.

Uppbygging við Námskvísl og laugarnar sjálfar snúa að vernd náttúru og grunnþjónustu við gesti.  Þar er um að ræða salerni, búningsaðstöðu, bílastæði, göngupalla og göngubrú. Það svæði er nú þegar raskað eða liggur alveg að þegar röskuðu svæði.

Á hinu svæðinu sem áformað  að reisa gestastofu og gestaskála ásamt baðaðstöðu og laug. Svæðið er staðsett við Námshraun sem í dag er óraskað svæði. Ætlunin er að öll starfsemi nema skáli FÍ verði flutt þangað, til dæmis tjaldsvæði, bílar, veitingasala og önnur mannvirki.

Svæðið í kringum laugarnar sjálfar verður endurgert eins og hægt er í náttúrulegt ástand. Ásýnd svæðisins sem gestir sækja mest og náttúran þar í kring, verður því endurheimt og náttúruleg fegurð nýtur sín betur.

40% fleiri bílar á dag

Fjöldi gesta í Landmannalaugum hefur aldrei verið meiri.

Mælingar í júní sýndu að fjöldi bíla sem komu inn á svæðið voru 350 á dag. Það eru 40% aukning frá sama tíma árið 2022 og fleiri bílar en á fjölmennasta degi þess árs.

Það má áætla að fjöldi bíla hafi verið um 500 á dag yfir mitt sumar. Til samanburðar má nefna að við Laugardalsvöll eru 630 bílastæði.

Mikill fjöldi bíla við veginn inn í Landmannalaugar sumarið 2023 / Mynd: Umhverfisstofnun.

Aðgerðir óumflýjanlegar

Svæðið og innviðir þess eru ekki í stakk búin til þess að taka á móti slíkum fjölda. Mikið álag er á jarðminjar á svæðinu, akstur utan vega er mikið vandamál og kraðak á bílastæðinu skapar hættu. Aðgerðir til að mæta þörfum svæðisins eru því óumflýjanlegar.

Mögulega er  komið að þeim tímapunkti að ekki er hægt að horfa á ótakmarkaðan fjölda inn á svæðið.

Unnið eftir vinningstillögu

Framkvæmdirnar eru unnar í takt við vinningstillögu úr hönnunarsamkeppni um skipulag á svæðinu sem Umhverfisstofnun, Rangárþing ytra og Félag íslenskra landslagsarkitekta efndu til.

 

Mynd af framtíðarskipulag svæðisins sýnir óspillt útsýni úr laugunum.