Stök frétt

Hjólaferðir eru frábær leið til þess að kynnast Friðlandinu að Fjallabaki. Við fögnum því að gestir heimsæki svæðið og stundi þar fjölbreytta útivist. 

Óheimilt að hjóla á fjórum leiðum

Það eru fjórar leiðir sem ekki má hjóla á í Friðlandinu að Fjallabaki. Það er ýmist vegna mikils bratta og erfiðra aðstæðna, mikillar umferðar göngufólks sem erfitt er að mæta eða til að vernda einstakt útlit leiðarinnar. Þessar leiðir eru: 

  • Bláhnúkur
  • Grænagil
  • Að Rauðfossum og Auganu
  • Uppgönguhryggur, sá sem liggur á milli Skalla og Hattvers

Grænihryggur viðkvæmt svæði

Það er óheimilt að ganga eða hjóla á Grænahrygg í Sveinsgili. Grænihryggur er blágræn líparítalda og er afar viðkvæmur fyrir traðki. Svæðið umhverfis Grænahrygg er einnig mjög viðkvæmt.

Brun veldur miklu raski

Hjólandi gestir skulu forðast allt brun niður brekkur í friðlandinu, enda eykur slíkt verulega hættu á óþarfa jarðraski og gróðurskemmdum.

Áhugaverðar hjólaleiðir

Við hvetjum hjólreiðafólk til þess að hjálpa okkur að vernda þetta einstaka svæði og velja aðrar leiðir. Almennt eru flestar gönguleiðir á svæðinu fyrirtaks hjólaleiðir. Til dæmis: 

  • Brennisteinsalda
  • Suðurnámur
  • Ljótipollur

Tengt efni: