Stök frétt

Úrgangur frá ferðasalernum inniheldur bakteríur og efni sem geta verið skaðleg heilsu og umhverfi.

  • Einungis má losa salernisúrgang á sérstökum losunarstöðum.
  • Aldrei nota ferskvatnsslöngu til að skola ferðasalerni eða niðurfall.
  • Notum hanska eða spritt á hendur til að koma í veg fyrir bakteríusmit.
  • Ferðasalerni eru eingöngu fyrir piss, kúk og klósettpappír. Mikilvægt er að nota eingöngu klósettpappír sem er ætlaður ferðasalernum.
  • Notum vistvæn og lífbrjótanleg hreinsiefni. Forðumst að nota klór eða hreinsiefni sem innihalda formaldehýð eða fosfat.
  • Ef hægt er, losum  eldhús- og sturtuvatn í annan farveg en rotþró eða safntank ætluðum salernisúrgangi.

Nýjar leiðbeiningar fyrir rekstraraðila

Umhverfisstofnun hefur gefið út nýjar leiðbeiningar fyrir losunarstaði ferðasalerna. Þær fjalla um aðstöðu á slíkum losunarstöðum og móttöku á salernisúrgangi. Leiðbeiningarnar voru í samstarfi við fulltrúa umhverfisgæðahóps heilbrigðiseftirlitssvæðanna.

Heilbrigðiseftirlitin munu fara í eftirlit í sumar, til dæmis á tjaldsvæði, þar sem leiðbeiningarnar verða kynntar fyrir rekstraraðilum og mögulegar úrbætur skoðaðar. 

Góð ráð fyrir notendur

Einnig hafa verið tekið saman góð ráð fyrir notendur ferðasalerna. Sjá hér að ofan. 

Góðu ráðin verður hægt að fá sem límmiða með QR kóða á kort með losunarstöðum á landinu, bæði á íslensku og ensku.