Stök frétt

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, undirritaði og staðfesti stjórnunar- og verndaráætlun fyrir fólkvanginn Hrútey í Blöndu þann 16. júní síðastliðinn.

Hrútey er klettaeyja í miðri Blöndu þar sem áin rennur í gegnum Blönduós. Í eynni er gróskumikill gróður og auðugt fuglalíf og er hún vinsæll útivistarstaður. Markmiðið með verndun svæðisins er að tryggja gangandi fólki frjálsa för um eyna og jafnframt að vernda jarðmyndanir, gróður og dýralíf svæðisins. 

Meginmarkmið með gerð stjórnunar- og verndaráætlunar er að leggja fram stefnu um verndun svæðisins og hvernig viðhalda skuli verndargildi þess þannig að sem mest sátt ríki um.

Í áætluninni er lögð fram stefnumótun til framtíðar, ásamt aðgerðaáætlun til þriggja ára. Áætlunin var unnin af fulltrúum Umhverfisstofnunar og sveitarfélagsins Húnabyggðar.

Áætlunina má finna hér fyrir neðan ásamt frekari upplýsingum um vinnslu áætlunarinnar og upplýsingar um fólkvanginn.

Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Hrútey í Blöndu