Stök frétt

Tekin hefur verið ákvörðun um að loka nýfundna hellinum í Mývatnssveit í sex mánuði til viðbótar eða til 19. október 2023.

Umhverfisstofnun hefur metið það sem svo að nauðsynlegt sé að framlengja lokun hellisins og hefur umhverfis- orku og loftslagsráðherra nú staðfest ákvörðun stofnunarinnar. Samráð var haft við hagsmunaaðila þegar ljóst var að þörf væri á framlengingu lokunarinnar vegna verulegrar hættu á tjóni.

Jarðhitaútfellingar í hellinum eru einsdæmi á Íslandi. Við greiningu kom í ljós að um er að ræða útfellingar kalsíumkarbónats (CaCO3) sem telst afar sjaldgæft í hraunhellum á heimsvísu. Það sem gerir þennan helli sérlega sérstakan er að útfellingarnar hafa þarna fallið úr jarðhita, en á heimsvísu myndast sambærilegar útfellingar í grunnvatni sem drýpur úr lofti.

Útfellingarnar dreifast um allan hellinn og hafa þar vaxið helst á gólfi og veggjum hans. Hellinn er í hrauni sem talið er vera um 8000 ára gamalt og var hann einangraður frá yfirborði jarðar í árþúsundir. Viðvarandi jarðhiti í hellinum skapaði heitar og rakar aðstæður sem útfellingarnar mynduðust í. Útfellingarnarnar eru því jarðmyndanir sem teljast hafa mjög hátt verndargildi sökum sérstöðu og fágætis og markmiðið með lokuninni er því að tryggja að jarðmyndanirnar í hellinum verði ekki fyrir óafturkræfu raski.

Meðan á lokuninni stendur getur Umhverfisstofnun veitt leyfi fyrir ferðum sem tengjast frekari könnun hans og rannsóknum á honum, en öll önnur umferð verður óheimil. Þá er stofnuninni heimilt að opna svæðið fyrr ef stofnunin metur sem svo að það sé fýsilegt og að ekki verði lengur talin hætta á skemmdum.

Lokunin er samkvæmt 25. gr. a laga nr. 60/2013 um náttúruvernd. Fram kemur í greininni að lokun samkvæmt henni skuli að jafnaði ekki standa lengur en tvær vikur en ef nauðsyn krefur sé heimilt að framlengja hana, að fenginni staðfestingu ráðherra.

 

Tengt efni: