Stök frétt

Mynd: Glenn Carstens Peters - Unsplash

Upptaka af kynningarfundi um nýja reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur hefur nú verið birt. 

 

Þann 15. nóvember 2022 tók í gildi ný reglugerð um skráningarskyldan atvinnurekstur samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Reglugerðin kveður á um skráningu tiltekins atvinnurekstrar í miðlæga rafræna gátt í stað starfsleyfisskyldu.

Umhverfisstofnun boðaði til kynningarfundar um reglugerðina og rafrænu gáttina þriðjudaginn 29. nóvember. Fundurinn fór fram á Teams.

Nánar um reglugerðina.