Umhverfisstofnun vekur athygli á norrænum veffundi, Webinar 3 Digital circularity transition in the waste sector and Nordic municipalities, sem verður haldinn fimmtudaginn 24. nóvember kl 12:00-14:30 að íslenskum tíma. Fundurinn fer fram á ensku.
Frestur til að skrá sig er til lok þriðjudags 22. nóv nk. Hér má sjá upplýsingar um fundinn og skráningartengil.Norðurlöndin standa öll frammi fyrir svipuðum áskorunum við að takast á við hringrásarumskiptin sem samfélög okkar eru að ganga í gegnum. Vefnámskeiðið er haldið í miðri stafrænni tæknibyltingu úrgangsmála og tekur á spurningunni: Hvað hafa stafræn umskipti í úrgangsgeiranum að bjóða norrænum sveitarfélögum á vegferð sinni í átt að hringrásarhagkerfi?
Fjöldi nýstárlegra lausna eru þegar að þróast á Norðurlöndunum. Vefnámskeiðið mun sýna nokkrar af þessum tæknilegu/stafrænu lausnum fyrir sorphirðu sveitarfélaga og úrgangsstjórnun – sem nær yfir nýstárlegar lausnir á öllum stigum úrgangsstjórnunar frá söfnun til lokameðhöndlunar.
Veffundurinn mun innihalda: