Þriðjudaginn 22. nóvember frá kl. 12:15 – 13:00 efnir Umhverfisstofnun til opins fyrirlesturs í beinu streymi um efnin í umhverfi barna.
Farið verður yfir í hvaða aðstæðum eru mestar líkur á því að börn verði fyrir útsetningu mengunarefna í umhverfinu. Skoðað verður sérstaklega hvaða aðstæður og vörur ætti að varast. Tekin verða dæmi um leikföng, mataráhöld, hreinsiefni, hreinlætisvörur, byggingarefni, húsgögn og fleira.
Fjallað verður um hvernig hægt er að gera umhverfi barna heilsusamlegra með einföldum lausnum, upplýstu vöruvali og réttri notkun vara.
Við hvetjum áhugasama til að senda okkur spurningar og vangaveltur fyrir fram svo að við getum mótað fyrirlesturinn eftir ykkar áhuga. Senda inn nafnlausa spurningu.
Fyrirlesturinn flytur Bergljót Hjartardóttir, sérfræðingur í teymi hringrásarhagkerfis hjá Umhverfisstofnun. Fundarstjóri verður Ísak Sigurjón Bragason, sérfræðingur í teymi efnamála.
Ekki missa af áhugaverðum fyrirlestri um umhverfismál á mannamáli!
Tengt efni: