Umhverfisstofnun boðar til opins kynningarfundar um niðurstöður mengunarvarnaeftirlits og umhverfisvöktunar vegna starfsleyfis PCC Bakki Silicon. Fundurinn er árlegur og í samræmi við starfsleyfi PCC.
Fundurinn fer fram þriðjudaginn 22. nóvember nk. kl. 16:15 í fundarsalnum Flatey á Fosshótel Húsavík.
Dagskrá fundarins:
Fundarstjóri: Katrín Sigurjónsdóttir, sveitarstjóri Norðurþings
Skýrslu umhverfisvöktunar má nálgast hér
Allar ábendingar varðandi þær upplýsingar sem íbúar og aðrir hafa áhuga á að heyra um varðandi eftirlit Umhverfisstofnunar og starfsemi PCC eru velkomnar.
Ábendingum má koma á framfæri á ust@ust.is og á kynningarfundinum.